Skýrsla X - Afskorinn
€2,99
Afskorinn fingur og sú sem hann tilheyrði er horfin af yfirborði jarðar. Hún hlítur að hafa verið myrt, eða var hún það?
Í stað þess að gera leiðinlegt heimanám ákveða Andrés og Kalli að skoða skýrslurnar í málmkassa Madsen rannsóknarlögreglumanns. Málið um Bellu Toft grípur athygli þeirra og ákveða þeir að rannsaka málið sjálfir. Lögreglan fann einungis litla fingurinn hennar Bellu en restin af henni er horfin og engin virðist geta fundið líkið. Er hún virkilega látin eða hafði henni kannski verið rænt? Systir Bellu vissi að henni hafði langað til þess að skilja við eiginmann sinn og nú situr hann í fangelsi fyrir morðið á eiginkonu sinni. Gæti verið að hann sé saklaus? Rannsóknin dregur þá inn í heim blekkinga þar sem ekkert er eins og það sýnist. Er þetta hinn fullkomni glæpur?
Skýrsla X serían er fullkomin fyrir þá sem elska að púsla saman vísbendingum í flóknum lögreglumálum. Í anda Encyclopedia Brown um unga rannsakendur er serían full af spennu og óvæntum uppákomum.
Zum Buch











