{"product_id":"launrad-i-lundunum-ken-follett-hoerbuch-download","title":"Launráð í Lundúnum","description":"Launráð í Lundúnum er grípandi skáldsaga um heima fjármála og glæpa eftir metsöluhöfundinn Ken Follett. Geta blaðamenn komið upp um glæpavef sem tengir tvo að því er virðist ótengda glæpi?\nÍ London vaknar stjórnmálamaður við hlið fagurrar stúlku; glæpamaður upplýsir lið sitt; fjármálajöfur snæðir morgunverð með bankamanni. Þá gerast þrír atburðir: Tilraun til sjálfsvígs, áhlaup og yfirtaka.\nAtburðirnir sýnast í fyrstu ótengdir þar til blaðamenn Evening Post fara að spyrja spurninga. Hvers vegna er jamaíkanskur banki í vandræðum? Hver keyrði Rolls-Royce bifreiðina sem sást nærri áhlaupinu? Hver var maðurinn sem var skotinn? Eftir því sem líður á daginn eyðist auður, orðspor skemmast og prinsipp eru rofin.\nÞað er ekki fyrr en stjórnmálamaður sem hefur orðið fyrir fjárkúgun ákveður að taka málin í sínar hendur og kemur tveimur óttalausum blaðamönnum á sporið að glæpavefur í miðju samsærisins er afhjúpaður. Verður sannleikurinn of hættulegur fyrir prentið á þessum ógleymanlega degi í höfuðborginni?\nBókin er meðal fyrstu skáldsagna Ken Follett og var upphaflega gefin út undir höfundarnafninu Zachary Stone.","brand":"Ken Follett","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54014644617543,"sku":"9788727151229","price":6.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/launrad-i-lundunum-hoerbuch-download-cover.webp?v=1779908728","url":"https:\/\/www.cinebuch.de\/products\/launrad-i-lundunum-ken-follett-hoerbuch-download","provider":"CineBuch","version":"1.0","type":"link"}