{"title":"L.S. Hilton","description":"\u003cp\u003eL.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"ultima-ls-hilton-hoerbuch-download","title":"Ultima","description":"Ef þú getur ekki sigrað þá - drepurðu þá.\nHinn glæsilegi listaverkasali Elizabeth Teerlinc veit ýmislegt um falsanir, enda er hún ein af þeim. Hennar sanna nafn, Judith Rashleigh er falið í lygavef. Og að baki hennar liggja þeir sem voguðu sér að standa í vegi fyrir henni.\nEn nú er hún föst í baráttu milli rússnesku mafíunnar og spillingar innan ítölsku lögreglunnar og neyðist til að falsa listaverk sem hún þarf að selja í uppboðshúsinu þar sem hún hóf feril sinn fyrir löngu síðan.\nJudith er eins spennt fyrir að kollvarpa fyrrum vinnuveitanda sínum og hún er fyrir öfgafullu kynlífinu sem hún getur ekki lifað án - en mistök eiga eftir að vera henni dýrkeypt.\nÞað að setja hennar nýja sjálf í sviðsljósið skapar henni enn meiri hættu. Og uppljóstrar leyndarmálum sem gætu orðið Judith að falli.","brand":"L.S. Hilton","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53633155924295,"sku":"9788727311388","price":9.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/ultima-hoerbuch-download.webp?v=1775068820"},{"product_id":"maestra-ls-hilton-hoerbuch-download","title":"Maestra","description":"Judith Rashleigh vinnur á daginn á virðulegu uppboðshúsi í London en á kvöldin á vafasömum bar til að ná endum saman. Þegar hún áttar sig á samsæri í dagvinnunni missir hún starfið áður en hún getur komið upp um svikin. Í örvæntingu sinni þiggur hún boð til Frönsku rívíerunnar, sem endar með ósköpum. Alein og í lífshættu þarf Judith að treysta á hæfileika sína til að passa inn í á meðal efnuðu elítunnar á meðan hún reynir að koma upp um listaverkasvindlið sem kostaði hana starfið.\nÞetta er fyrsta skáldsagan í seríu sem heldur lesendum í heljargreipum. Bókin hrífur þig með sér í æsispennandi ferðalag um sögusviðið meðal hinnar ríku og frægu í Suður-Evrópu með aðalpersónu sem er eins skörp og Amy Dunne og eins hættuleg og Lisbeth Salander.","brand":"L.S. Hilton","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53633281392967,"sku":"9788727311401","price":9.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/maestra-hoerbuch-download.webp?v=1775070428"},{"product_id":"domina-ls-hilton-hoerbuch-download","title":"Domina","description":"Judith Rashleigh lifir nú við velsældir í Feneyjum. Þetta er lífið sem hún var tilbúin til að drepa fyrir. En einhver veit hvað hún hefur gert.\nEina leiðin til að bjarga sér er að finna ómetanlegt málverk - gallinn er sá að hún er ekki viss hvort það sé til. Og hún er ekki sú eina sem leitar að því.\ní þetta skipti er Judith ekki við stjórnvölinn. Hún er gjörsamlega yfirbuguð af óvini sem er miskunnarlausari og valdameiri en hana hefði nokkurn tíma grunað. Og ef hún hefur ekki yfirhöndina, á hún á hættu að tapa lífinu.","brand":"L.S. Hilton","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53633393295687,"sku":"9788727311425","price":9.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/domina-hoerbuch-download.webp?v=1775072301"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/collections\/autor-ls-hilton.webp?v=1775068818","url":"https:\/\/www.cinebuch.de\/collections\/l-s-hilton.oembed","provider":"CineBuch","version":"1.0","type":"link"}