{"title":"Guðrún Lárusdóttir","description":"\u003cp\u003eHildur er ung að aldri þegar hún missir móður sína. Pabbi hennar, séra Einar, hugsar einn um dóttur sína og Sigurð fósturson sinn og fósturbróður Hildar. Séra Einar er eftirlátssamur og uppeldið á bænum er ekki upp á marga fiska. Ef Hildi langar - þá fær hún. Þar til að séra Einar giftir sig aftur. Hildur er ekki ánægð með stjúpmóður sína sem vill halda úti miklum aga og fylgja ströngum reglum við uppeldi. Hildi finnst þá allt spennandi sem er bannað. Um leið og hún fær tækifæri til flyst hún til Kaupmannahafnar til að standa á eigin fótum og gera eins og henni sýnist. Hún hafnar ástarjátningu Sigurðar og heldur út í heim. En sjálfstætt líf í Kaupmannahöfn er ekki eins auðvelt og Hildur hélt í fyrstu. Hún fær að kynnast lífi í stórborg, eignast vinkonur og lenda í ævintýrum en samt hugsar hún heim. Hér er saga um ást sem slokknar ekki svo auðveldlega og unga konu sem fylgir sinni eigin sannfæringu sama hvað bjátar á.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"thess-bera-menn-sar-gudrun-larusdottir-hoerbuch-download","title":"Þess bera menn sár","description":"Hildur er ung að aldri þegar hún missir móður sína. Pabbi hennar, séra Einar, hugsar einn um dóttur sína og Sigurð fósturson sinn og fósturbróður Hildar. Séra Einar er eftirlátssamur og uppeldið á bænum er ekki upp á marga fiska. Ef Hildi langar - þá fær hún. Þar til að séra Einar giftir sig aftur. Hildur er ekki ánægð með stjúpmóður sína sem vill halda úti miklum aga og fylgja ströngum reglum við uppeldi. Hildi finnst þá allt spennandi sem er bannað. Um leið og hún fær tækifæri til flyst hún til Kaupmannahafnar til að standa á eigin fótum og gera eins og henni sýnist. Hún hafnar ástarjátningu Sigurðar og heldur út í heim. En sjálfstætt líf í Kaupmannahöfn er ekki eins auðvelt og Hildur hélt í fyrstu. Hún fær að kynnast lífi í stórborg, eignast vinkonur og lenda í ævintýrum en samt hugsar hún heim. Hér er saga um ást sem slokknar ekki svo auðveldlega og unga konu sem fylgir sinni eigin sannfæringu sama hvað bjátar á.","brand":"Guðrún Lárusdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53669375213895,"sku":"9788727184005","price":8.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/thess-bera-menn-sar-hoerbuch-download-cover.webp?v=1775653387"},{"product_id":"ljos-og-skuggar-soegur-ur-daglega-lifinu-gudrun-larusdottir-hoerbuch-download","title":"Ljós og skuggar: sögur úr daglega lífinu","description":"Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin.\nGuðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.","brand":"Guðrún Lárusdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53670637338951,"sku":"9788727184012","price":3.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/ljos-og-skuggar-soegur-ur-daglega-lifinu-hoerbuch-download-cover.webp?v=1775664321"},{"product_id":"konur-i-vingardinum-gudrun-larusdottir-hoerbuch-download","title":"Konur í víngarðinum","description":"Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin.\nGuðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.","brand":"Guðrún Lárusdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53670766117191,"sku":"9788727183992","price":2.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/konur-i-vingardinum-hoerbuch-download-cover.webp?v=1775665284"},{"product_id":"gamla-husid-gudrun-larusdottir-hoerbuch-download","title":"Gamla húsið","description":"Norðarlega í Syðstuvík, í hlíðardrögum, standa tvö hús. Annað er fallegt, hvítt og nýlegt en í húsinu býr sýslumaður og Rúna dóttir hans ásamt strangri frænku sem sér um uppeldi Rúnu. Næsta hús við er gamalt og hrörlegt kot, sem þó er umvafið ást og í kotinu búa öldruð og fátæk hjón. Þau eiga eina dóttur sem flutti erlendis og nú hafa engin bréf borist frá henni um nokkuð skeið. Sýslumaðurinn er góður og sanngjarn, þá sérstaklega í garð nágranna sinna. Rúna er afskaplega forvitin um líf annarra í sveitinni, þá sérstaklega þeirra sem búa við fátækt, hún vill allt gera handa öllum og fá pabba sinn með í lið. Þegar hin dularfulla Dína Jockums kemur með skipi til Syðstuvíkur verða feðginin mjög forvitin um hana.\nEn ekki eru allir í sveitinni þar sem þeir eru séðir. Leyndarmál og löngu gleymd tengsl krauma undir yfirborðinu þegar þessi leyndardómsfulli gestur tekur þátt í samfélagi Syðstuvíkur. En einn þorpsbúi með glöggt auga sveipir hulunni af ráðgátunni.","brand":"Guðrún Lárusdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53672193982791,"sku":"9788727175638","price":6.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/gamla-husid-hoerbuch-download-cover.webp?v=1775685313"},{"product_id":"fataekt-gudrun-larusdottir-hoerbuch-download","title":"Fátækt","description":"Fátækt kom fyrst út árið 1949 í ritsafni Guðrúnar Lárusdóttur.\nHér er fylgst er með hvernig slæm efnahagsstaða verkar á líf einstaklinga og hvert eðli hennar er. Henni er fylgt allt frá ákvörðunum fátæktarnefndar til einstaka heimili sem við hana glíma. Fátækt fylgir barnæsku Ellu. Ella er dóttir einstæðrar móður og þegar sagan hefst eru þær heimilislausar. Þær kynnast Jóni Árnasyni fátæktarfulltrúa Reykjavíkur og með aðstoð hans byrja smám saman að koma undir sig fótunum og finna sér betra líf. Höfundur sögunnar, Guðrún Lárusdóttir, þekkti sérstaklega vel til fátæktar síns samtíma þar sem hún gegndi hlutverki fátæktarfulltrúa í Reykjavík og barðist þar fyrir betri kjörum bágstaddra. Hér veitir hún innsýn inn í lífshlaup fátækra barna í upphafi 20. aldar á Íslandi.","brand":"Guðrún Lárusdóttir","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53672213184839,"sku":"9788727175645","price":4.99,"currency_code":"EUR","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/files\/fataekt-hoerbuch-download-cover.webp?v=1775685369"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0920\/5455\/2903\/collections\/gudrun-larusdottir-autor-kollektion.webp?v=1775653384","url":"https:\/\/www.cinebuch.de\/collections\/gudrun-larusdottir.oembed","provider":"CineBuch","version":"1.0","type":"link"}